Ólafur verður í troðslukeppninni
Ólafur Ólafsson leikmaður Grindavíkur, sem sigraði í eftirminnilega í þarsíðustu troðslukeppni KKÍ, hefur tilkynnt þátttöku sína í næstu keppni sem fer fram um leið og Stjörnuleikir KKÍ um næstu helgi.. Ólafur gat ekki verið með í síðustu keppni þar sem hann lék í Þýskalandi á síðustu leiktíð.
Ólafur hefur ákveðið að skora á erlendu leikmennina sem eru hér á landi. Vitað er til þess að nokkrir þeirra eru miklir háloftafuglar svo það má búast við skemmtilegri keppni í ár.
Stjörnuleikirnir fara fram í íþróttahúsi Fjölnis í Grafarvogi næsta laugardag.