Ólafur Örn í Fram
Grindvíski knattspynumaðurinn Ólafur Örn Bjarnason hefur gengið til liðs við Fram í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, en hann skrifaði undir samning við félagið í gær. Ólafur hefur leikið með Grindvíkingum síðan hann kom heim úr atvinnumennsku árið 2010.
Grindvíkingar féllu sem kunnugt er úr úrvalsdeildinni í sumar og leika í 1. deild að ári. Ólafur var um tíma spilandi þjálfari Grindavíkurliðsins en Ólafur er 37 ára gamall og á að baki 27 landsleiki fyrir Ísland.