Ólafur Örn áfram hjá Grindavík
Fyrrum þjálfari Grindvíkinga, Ólafur Örn Bjarnason hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild félagsins en hann mun nú einungis leika með liðinu en ekkert koma að þjálfun.
Fyrsta verkefni nýráðins þjálfara, Guðjóns Þórðarsonar var að tryggja áframhaldandi veru Ólafs hjá Grindavík. Ólafur er eins og allir vita einn af beti varnarmönnum landsins með 27 landsleiki að baki og þar af nokkra undir stjórn Guðjóns.
Með Grindavík hefur Ólafur spilað 165 leiki og skorað 20 mörk þ.m.t. markið mikilvæga gegn ÍBV í haust. Auk þess á Ólafur Örn að baki glæsilegan atvinnumannaferil með Brann í Noregi.