Ólafur kjörinn leikmaður ársins hjá Brann
Ólafur Örn Bjarnason var á sunnudaginn kjörinn leikmaður ársins hjá norska úrvalsdeildarliðinu Brann. Ólafur hefur leikið með norska liðinu síðan 2004, en var áður hjá Grindavík. Hann náði þeim áfanga á árinu að spila sinn 100. leik fyrir félagið og kórónaði nafnbótina á sunnudaginn með því að skora mark Brann úr vítaspyrnu í 1-1 jafntefli gegn Tromsö.
Ólafur á að baki 111 leiki með Brann í deildinni og 168 leiki alls og hefur skorað 13 mörk. Hann varð Noregsmeistari með liðinu á síðustu leiktíð, en í ár hefur liðinu ekki gengið jafn vel og er um miðja deild í 8. sæti þegar einni umferð er ólokið.
Mynd/Brann.nk: Ólafur Örn Bjarnason er hér með verðlaun sín sem besti leikmaður Brann árið 2008.