HSS
HSS

Íþróttir

Ólafur kann vel við sig í Frakklandi
Þriðjudagur 19. janúar 2016 kl. 09:52

Ólafur kann vel við sig í Frakklandi

Óhugnaleg að vera nálægt hryðjuverkunum í París

Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson hefur komið sér vel fyrir í Frakklandi þar sem hann leikur körfubolta með liði St. Clement í 2. deild. Ólafur býr ásamt Kartínu Eyberg unnustu sinni í suður Frakkalandi. Ólafur var í viðtali við vefsíðuna Grindavik.net þar sem hann ræddi lífið í Frakklandi.

Ólafur stefnir á langan feril í atvinnumennsku og hefur ekki í hyggju að koma til Grindavíkur á næstunni til þess að spila körfubolta. Hann segist hafa gert mistök með því að byrja ekki fyrr að æfa aukalega, þannig hefði hann líklega komist fyrr í atvinnumennsku. „Það voru mín mistök þegar eg var ungur ég byrjaði of seint að æfa aukalega það gerði það að verkum að ég varð ekki eins góður fyrr eins og eg ætlaði mér, þetta kemur ekkert af sjálfu sér,“ segir Ólafur í viðtalinu. Jóhann bróðir Ólafs er núna á sínu fyrsta ári sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur. Ólafur telur að það hefði verið gaman að spila undir hans stjórn og hefur mikla trú á Jóhanni sem þjálfara.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ólafur og unnusta hans áttu bókað far og gistingu í París helgina eftir að hryðjuverk áttu sér stað í borginni í nóvember s.l.. Þau breyttu sínum áformum fljótlega eftir að árásinar. „Þetta er svolítið öðruvísi að vera svona stutt frá þessum voðaverkum og maður er bara frá litla Íslandi. Við erum eitthvað svo græn þarna heima gagnvart einhverju svona. Maður var svolítið smeikur þegar við fórum út að borða kvöldið eftir, en þetta var svolítið óhugnaleg að vera nálægt þessu,“ segir Ólafur í viðtalinu sem lesa má í heild sinni hér.