Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Góðir félagar í UMFN heiðraðir - Þórunn fékk Ólafsbikarinn
Þórunni Maríu Þorbergsdóttur var veittur Ólafsbikarinn. Hér er hún með Ólafi Thordersen.
Laugardagur 4. júlí 2020 kl. 07:51

Góðir félagar í UMFN heiðraðir - Þórunn fékk Ólafsbikarinn

Ágætis mæting var á aðalfund UMFN þó hann væri seint ár ferðinni þetta árið og er það eins og með annað sem hefur þurft að fresta vegna Covid-19-veirunnar.

Ólafur Eyjólfsson var endurkjörinn sem formaður og var sitjandi stjórn endurkjörin að undanskilinni einni breytingu, Þórdís Björg Ingólfsdóttir var kjörinn varamaður í stað Brynju Vigdísar Þorsteinsdóttur sem hefur verið starfandi í stjórnum UMFN frá 2013.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Formaður fór yfir ársskýrslu stjórnar. Gunnar Þórarinsson fór yfir ársreikning félagsins sem var samþykktur samhljóða.

Gestir frá  UMFÍ, þeir Guðmundur Sigurbergsson og Lárus B. Lárusson, heimsóttu fundinn. Guðmundur tók til máls og sagði það ánægjulegt að Unglingalandsmótið verði haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina en bæði 50+ og Landsmóti/Íþróttaveislunni verði frestað. Hann sagði að 44% af tekjum UMFN komi frá Íslenskri getspá og nefndi mikilvægi þess félags umfram erlend félög sem skila engu til landsins en eru stórtæk hérlendis.

Heiðursviðurkenningar veittar

Félagar sem hafa unnið gott og óeigingjarnt starf í þágu félagsins voru heiðraðir á fundinum. Gullmerki fengu þeir Friðrik Stefánsson (fyrir körfuknattleiksdeildina) og Logi Halldórsson (fyrir körfuknattleiksdeildina). Silfurmerki fengu Árni Þór Ármannsson (fyrir knattspyrnudeildina), Guðni Erlendsson (fyrir knattspyrnudeildina), Hörður Birkisson (fyrir lyftingadeildina), Ágústa Guðmarsdóttir (fyrir körfuknattleiksdeildina og aðalstjórn) og Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir (fyrir sunddeildina og aðalstjórn). Þá var Önnu Andrésdóttur (fyrir aðalstjórn) veitt bronsmerki.

Að lokum afhenti Ólafur Thordersen Þórunni Maríu Þorbergsdóttur Ólafsbikarinn fyrir langt og gott starf hjá körfuknattleiksdeildinni. Hann talaði um að hún sé alltaf til staðar ef þörf er á og sagði Ólafur frá því að þegar hann tók þátt í Reykjavíkurhlaupinu á síðasta ári þá var Þórunn að sjálfsögðu þar á hliðarlínunni að hvetja þátttakendur með grænt Njarðvíkurbuff á höfði.

Svo var boðið upp á kaffi og umræður á léttum nótum fóru fram.

Þau fengu viðurkenningar fyrir gott starf hjá UMFN.

Stjórn UMFN 2020.