Ólafur biðst afsökunar
Óvönduð og heimskuleg orð
Í viðtali eftir leik KR og Grindavíkur í úrslitum Domino's deildarinnar í gær, lét Ólafur Ólafsson leikmaður Grindvíkinga falla ósmekkleg ummæli sem vöktu hörð viðbrögð. Ólafur sagði þá að Grindvíkingar hefðu verið „eins og litlar fermingarstelpur á túr,“ í samtali við Vísi. Leikmaðurinn sá að sér og sendi fljótlega frá sér tilkynningu þar sem hann baðst afsökunar á ummælum sínum.
„Fyrr í kvöld í viðtali við fjölmiðla eftir tapleik liðs míns við KR í úrslitum Íslandsmótsins lét ég mjög óvönduð og heimskuleg orð falla í tengslum við kvenfólk í körfubola. Ummæli mín voru sögð í mikilli bræði og eftir erfitt tap en það er þó engin afsökun. Ég á að vita betur enda hef ég stutt kvennalið Grindavíkur dyggilega í allan vetur og veit að hæfileikaríkar konur spila körfubolta jafnt og hæfileikaríkir karlmenn. Ég sem fyrirmynd yngri barna geri mér grein fyrir því að ég á að vanda orð mín er ég fer í viðtöl. Ég vil því biðja alla körfuknattleikshreyfinguna afsökunar á þeim orðum og þá sérstaklega kvenþjóðina sem spilar körfubolta,“ segir Ólafur í yfirlýsingu sinni.