Bilakjarninn
Bilakjarninn

Íþróttir

Ólafsvíkingar kjöldregnir í Mjólkurbikarnum í Keflavík
Muhamed Alghoul misnotaði vítaspyrnuna en fékk boltann eftir frákastið og kláraði þrennu sína í leiknum.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 15. maí 2025 kl. 12:48

Ólafsvíkingar kjöldregnir í Mjólkurbikarnum í Keflavík

Keflvíkingar unnu stórsigur á 2. deildarliði Víkings frá Ólafsvík í 16 liða úrslitu Mjólkurbikarsins í knattspyrnu karla í gær. Lokatölur urðu 5-2 fyrir Keflvíkinga sem fóru mikinn í síðari hálfleik.

Heimamenn náðu forystu með marki Muhamed Alghoul á 4. mínútu en gestirnir svöruðu með tveimur mörkum á 16. og 28. mínútu. Keflvíkingar náðu að jafna leikinn rétt fyrir leikhlé með marki Ara Steins Guðmundssonar á 44. mínútu, 2-2 í hálfleik.

Leikmenn voru nýkomnir inn á flott fótboltagrasið í Keflavík þegar fimmta mark leiksins leit dagsins ljós. Kári Sigfússon skoraði eftir góðan undirbúning Frans Elvarssonar sem gaf á félaga sinn inn í teig. Níu mínútum síðar bætti Muhamed Alghoul við öðru marki sínu. Hann var síðan aftur á ferðinni á 61. mínútu þegar hann fékk víti. Markvörður Ólafsvíkinga varði hins vegar vítið en Marin Mudrazija náði frákastinu og gaf boltann aftur inn í teiginn þar sem Alghoul kom aðvífandi og kláraði dæmið, sitt þriðja mark og 5-2 urðu lokatölur leiksins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Keflvíkingar eru því komnir í 8-liða úrslitin og þar eru bara stærri lið landsins sem bíða eftir liðinu úr bítlabænum.