Íþróttir

  • Ofur-Andri setti tvö og Grindvíkingar unnu örugglega
    Andri Rúnar Bjarnason var enn og aftur á ferðinni rétt undir lok fyrri hálfleiks. Eyjamenn ekki alveg með á nótunum og Andri Rúnar afgreiddi boltann snyrtilega í markið.
  • Ofur-Andri setti tvö og Grindvíkingar unnu örugglega
    Andri Rún­ar var með boltann og lyfti inn fyr­ir á Sam Hew­son sem vippaði snyrti­lega yfir Eyjamarkvörðinn. Hér vippar hann boltanum. VF-myndir: Hilmar Bragi
Sunnudagur 18. júní 2017 kl. 20:29

Ofur-Andri setti tvö og Grindvíkingar unnu örugglega

Andri Rún­ar Bjarna­son er með opinn reikning í Pepsi-deildinni, markareikning. Hann bætti veimur mörkum á þann reikning síðdegis og hefur skorað níu mörk í átta leikjum fyrir Grindavík á Íslandsmótinu í knattpsyrnu karla. Grindvíkingar unnu 3:1 sigur á ÍBV í Grindavík. Staðan í hálfleik var 3:0 en gestirnir kóruðu í bakkann í síðari hálfleik.
 
Heimamenn í Grindavík voru fljótir að stimpla sig inn. Strax á fjórðu mínútu var Andri Rún­ar Bjarna­son, Ofur-Andri, mættur í boltann og búinn að senda hann í markið framhjá markmanni Eyjamanna. Hálfgerð endurtekning á marki sem hann skoraði gegn FH í síðasta leik, sem einnig fór fram á Grindavíkurvelli.
 
Eyjamenn virtust vera meira með boltann í leiknum en Grindvíkingar áttu hættulegar sóknir sem skiluðu mörkum. Þannig bættu Grindvíkingar við marki á 23. mínútu. Andri Rún­ar var með boltann og lyfti inn fyr­ir á Sam Hew­son sem vippaði snyrti­lega yfir Eyjamarkvörðinn.
 
Andri Rúnar Bjarnason var enn og aftur á ferðinni rétt undir lok fyrri hálfleiks. Eyjamenn ekki alveg með á nótunum og Andri Rúnar afgreiddi boltann snyrtilega í markið. Staðan 3:0 í hálfleik.
 
Eyjamenn sóttu stíft í síðari hálfleik og uppskáru mark á 60. mínútu. Gunnar Heiðar Þorvalsson skoraði þar af stuttu færi.
 
ÍBV reyndi allt til að bæta við mörkum og aukin harka færðist í leikinn og þurfti dómarinn nokkuð oft að sýna gula spjaldið og einu sinni það rauða, þegar einn Eyjamaður fékk sitt annað gula spjald.
 
Grind­vík­ing­ar eru með 17 stig og eru áfram í öðru sæti Pepsi-deild­ar­inn­ar, tveimur stigum á eftir Valsmönnum, sem verma toppsætið.

 
Strax á fjórðu mínútu var Andri Rún­ar Bjarna­son, Ofur-Andri, mættur í boltann og búinn að senda hann í markið framhjá markmanni Eyjamanna. Hálfgerð endurtekning á marki sem hann skoraði gegn FH í síðasta leik, sem einnig fór fram á Grindavíkurvelli.

 
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024