Íþróttir

Öflugur hópur til Noregs í taekwondo
Laugardagur 31. janúar 2015 kl. 07:00

Öflugur hópur til Noregs í taekwondo

Tæplega 40 manna hópur keppenda, þjálfara og aðstandenda hélt í gær til Noregs til að keppa á Norðurlandamótinu í taekwondo fyrir Íslands hönd. Íslenska landsliðið er núverandi meistari í liðakeppninni á Norðurlandamótinu og eiga því titil að verja.

Nokkrir af bestu taekwondo keppendum landsins fara á mótið og meðal þeirra er Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, fjórfaldur Norðurlandameistari, Ástrós Brynjarsdóttir, Ágúst Kristinn Eðvarðsson og Svanur Þór Mikaelsson en þau eru öll tvöfaldir Norðurlandameistarar.

Liðið hefur æft vel síðustu mánuði undir handleiðslu landsliðsþjálfara Íslands. Mótið fer fram í dag, laugardag, í öllum flokkum og það eru 25 keppendur sem taka þátt fyrir Íslands hönd þar af eru 11 keppendur og 2 þjálfarar frá Keflavík.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af liðinu í Leifsstöð er þau lögðu af stað í ferðalagið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024