HSS
HSS

Íþróttir

Miðvikudagur 6. ágúst 2003 kl. 18:43

Offroad-keppni við GoKartbrautina á laugardaginn

Fimmta umferð Íslandsmótsins og æfingakeppni í Offroad fara fram laugardaginn 9. ágúst á brautarsvæðinu við GoKart í Reykjanesbæ. Andri Örn Víðisson (Tamiya/Orion/LRP) og Gudmundur Werner (HPI/LRP/LRP) munu berjast hart um 2. sætið í loka umferð Íslandsmótsins sem fram fer á REIS brautinni í Reykjanesbæ laugardaginn 9. ágúst.Þeir verða þó ekki einir um baráttuna því "gamli" naglinn Sigurður Elíasson (Associated/LRP/LRP) hefur lofað að láta til sín taka og minna aðeins á sig. Svo má auðvitað ekki gleyma nýliðanum sem enn á möguleika á að skjótast í annað sæti en það er Sissi (HPI/GM/GM). Það er því ljóst að um spennandi keppni verður að ræða þrátt fyrir að Emil Örn Víðisson (Xray/Orion/LRP) hafi þegar tryggt sér titilinn.

Tímataka hefst kl. 10:00 en tímaplan má finna hér. Stefnt er að því að ljúka vinnu við að koma gervigrasinu á sinn stað fyrir mótið þannig að brautin verður í toppformi.
Bílakjarninn
Bílakjarninn