Bygg
Bygg

Íþróttir

Oddaleikur í Sláturhúsinu
Fimmtudagur 6. apríl 2006 kl. 09:51

Oddaleikur í Sláturhúsinu

Keflavík tekur á móti Skallagrím í oddaleik liðanna í undanúrslitunum Iceland Express deildarinnar í kvöld kl. 19:15 í Sláturhúsinu. Liðin hafa hvort um sig unnið tvo leiki og heldur sigurliðið í kvöld í úrslitin og mun leika þar á móti Njarðvík.

Keflvíkingar slátruðu Skallagrím á heimavelli síðasta fimmtudag 129 – 79 þar sem AJ Moye gerði 37 stig og tók 13 fráköst. Liðin mættust svo á nýjan leik í Borgarnesi á mánudag þar sem heimamenn höfðu betur 94-85, Vlad Boeriu var stigahæstur Íslandsmeistaranna með 18 stig og 9 fráköst.

Bæði Keflavík og Skallagrímur hafa unnið sína leiki á heimavelli í undanúrslitunum og því verður ákaflega fróðlegt að fylgjast með bræðrunum Sigurði og Val etja köppum sínum saman í leik sem verður sá síðasti á leiktíðinni fyrir annað hvort liðið.

„Stemmningin er fín í hópnum og við höfum oft áður farið í oddaleik í undanúrslitunum, það er ágætis próf fyrir lið að fara í oddaleik í undanúrslitum því ef þú vinnur hann þá ertu klár í úrslitin,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, í samtali við Víkurfréttir.

„Við þurfum að hitta á toppleik í kvöld og á lakan leik hjá Keflavík til þess að ná sigri,“ sagði Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms, við Víkurfréttir. „Okkur finnst tími kominn á nýtt meistaralið og munum leggja allt í sölurnar. Númer 1, 2 og 3 er að standast áhlaup Keflvíkinga og láta þá ekki draga okkur inn í sinn leik en þeir eru snillingar í því að hleypa leikjunum upp í mikinn hraða,“ sagði Valur að lokum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn