O´Callaghan farinn heim
Írinn Brian O'Callaghan mun ekki leika meira með Keflavíkurliðinu í knattspyrnu í sumar, en hann lék sinn síðasta leik fyrir Keflavík gegn Þrótti í gær.
Ástæða þess að hann yfirgefur liðið er sú að ef hann hefði verið lengur hjá Keflavík mætti hann ekki leika á Bretlandi mestallan næsta vetur. Leikmaðurinn lét vel af veru sinni hér á landi, en hans verður sárt saknað úr vörn Keflavíkur.