Nýtt heiti á fótboltavelli Keflvíkinga – Samið við Nettó

Gengið hefur verið frá samstarfssamningi Knattspyrnudeildar Keflavíkur og Nettó en það var formlega gert í boði knattspyrnudeildarinnar fyrir samstarfsaðila sem haldið var á dögunum. Samningurinn við Nettó er til þriggja ára og tryggir hann að Nettó verður einn allra stærsti styrktaraðili knattspyrnunnar í Keflavík.
Í samningnum felst meðal annars að völlurinn, sem áður hét Sparisjóðsvöllurinn, mun nú heita Nettó-völlurinn og þá mun meistaraflokkur karla leika með nafn Nettó á bakinu á búningum sínum. Nettó hefur stutt vel við bakið á Knattspyrnudeild Keflavíkur undanfarin ár og mun gera það áfram.
Heimild www.keflavik.is
Myndir: Jón Örvar Arason

Stefán Ragnar Guðjónsson, forstöðumaður innkaupa- og markaðssviðs Nettó og Þorsteinn Magnússon, formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur undirrita samninginn.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				