Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Nýr yfirþjálfari hjá ÍRB
Miðvikudagur 11. ágúst 2010 kl. 09:04

Nýr yfirþjálfari hjá ÍRB


Nýr yfirþjálfari í sundi, Anthony Kattan, hefur hafið störf hjá sundráði ÍRB. Anthony hitti þá sundmenn ÍRB sem dvöldu á Benidorm í æfingabúðum nú á dögunum og stýrði æfingum þar ásamt Eðvarði Þór Eðvarðssyni. Anthony mun hafa yfirumsjón með þjálfun allra sundmanna ÍRB frá u.þ.b. 5 ára aldri og hefur þegar hafið að þjálfa elsta hópinn.

Anthony er  27 ára að aldri, fæddur Breti, en flutti ungur til Nýja Sjálands. Þar gerði hann garðinn frægan sem þjálfari sundliðsins North Shore, fyrst sem þjálfari og síðan sem yfirþjálfari aldurshópa og var sem slíkur valinn þjálfari ársins á Nýja Sjálandi. Hjá North Shore öðlaðist Anthony mikla reynslu, þar sem hann vann með sundþjálfurum í fremstu röð, sem hafa m.a. þjálfað sundmenn á borð við Katie Sexton, heimsmeistara í 200 baksundi og Moss Burmester, heimsmeistara í 200 m flugsundi.

Á myndinni eru Eðvarð og Anthony að taka á móti sundmönnum sem dvöldu á Benidorm 28. júlí til 7. ágúst.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024