NÝR ÞJÁLFARI YNGRI FLOKKA KVENNA HJÁ KEFLAVÍK
Hjálmar Jónsson, knattspyrnukappi frá Egilsstöð hefur verið ráðinn þjálfari yngri flokka kvenna í knattspyrnu hjá Keflavík. Hann hefur þjálfað í kvennaboltanum fyrir austan undanfarin ár. Stúlkur á aldrinum 11 ára og yngri eru á æfingum á fimmtudögum og föstudögum frá 17.-18.30 og stúlkur á aldrinum 12-15 ára eru á mánudögum og miðvikudögum.kl. 17-18.30. Upplýsingar veita Hjálmar í síma 861-1964 og Steinbjörn í síma 421-5388.