Nýr leikmaður til Keflavíkur
Ólafur Þór Berry hefur gengið til liðs við Keflavík frá ÍBV. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Ólafur er 18 ára gamall, þykir mjög efnilegur og á nokkra leiki að baki með unglingalandsliðum Íslands. Fram kemur á heimasíðu félagsins að hann þykir fjölhæfur leikmaður og er vonast til þess að hann njóti sín vel í Keflavík og komi til með að styrkja liðið á næstu árum.