Bygg
Bygg

Íþróttir

Föstudagur 15. mars 2002 kl. 15:20

Nýr leikmaður í kvennalið Keflavíkur

Kvennalið Keflavíkur í körfu hafa fengið liðstyrk fyrir úrslitakeppnina en það er stúlka frá Mexíkó. Hún heitir Sonia Ortega og er 24 ára bakvörður sem á að vera mjög góður varnarmaður ásamt því að vera fjölhæfur sóknarleikmaður. Anna María Sveinsdóttir þjálfari Keflvíkinga segist vera farin að hlakka til leikjanna við KR...„Sonia kemur í fyrramálið og er ég spennt fyrir því að sjá hana. Það verður gaman að sjá hvort hún falli inn í liðið strax en ef hún gerir það verðum við sterkar“.

En afhverju fóru þið þessa leið?
„Við vorum þær einu sem ekki vorum komnar með Kana og því ákváðum við að styrkja liðið. Sonia á að vera mjög góður leikmaður eða svo segir sagan. Hún er mikill liðsmaður og á vonandi eftir að hleypa lífi í okkur.“

Hverjir eru möguleikar ykkar á titlinum?
„Þeir eru mjög góðir. Þeir leikir sem hafa verið að tapast í vetur eru vegna þess að hugarfarið var rangt en ef það er í góðu lagi eigum við að geta farið alla leið“.

Hvaða lið enda í úrslitum?
„Ég held að ÍS vinni Grindavík 2-0 því þær eru með betri mannskap og svo hafa Grindavíkurstúlkur misst leikmenn og þó svo nýji Kaninn þeirra sé góður er hann ekki eins góður og Jessica Gaspar. Ég þori ekki að spá í leikina hjá okkur og KR en vonandi förum við áfram“.
Bílakjarninn
Bílakjarninn