Ný stúka og stigatafla væntanlegt í nýjan íþróttasal í Grindavík
Kaup á stúku og töflu í nýjan íþróttasal í Grindavík var til umræðu á fundi bæjarráðs Grindavíkur í síðustu viku. Gert er ráð fyrir á fjárfestingaráætlun þessa árs að nýrri stúku og nýjum skjám eða stigatöflu verði komið fyrir í nýja salnum.
Undirbúningur verksins er í gangi en á fundinum var lögð fram kostnaðaráætlun um að koma líka fyrir veggsvölum fyrir ofan stúkuna ásamt fjölmiðlastúku við ritaraborð.