Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Norræn ungmenni keppa í golfi á árlegu vinabæjamóti
Keppendur, þjálfarar og fylgdarlið við setningu vinabæjamótsins í Íþróttaakademíuna í morgun. Mynd: Reykjanesbær.
Þriðjudagur 27. júní 2017 kl. 18:21

Norræn ungmenni keppa í golfi á árlegu vinabæjamóti

Vinabæjamót í íþróttum var sett í Reykjanesbæ í morgun. Á mótinu keppa börn og ungmenni frá vinabæjum Reykjanesbæjar, Kristiansand í Noregi, Trollhättan í Svíþjóð og Kerava í Finnlandi, auk bæjarbúa. Keppnisíþrótt í ár er golf.
 
Vinabæjamót í íþróttum, Nordic twin cities meetings, hafa verið haldin árlega frá árinu 1973.

Vinabæjaþjóðirnar skiptast á að halda mótin og nú er röðin komin að Reykjanesbæ. Keppt er í mismunandi greinum ár hvert og varð golf fyrir valinu þetta árið. Að sögn Hafþórs Birgissonar íþrótta- og tómstundafulltrúa vill bærinn styðja við þær greinar þar sem byggja þarf upp barna- og unglingastarf eða þar sem félögin eru í þeirri uppbyggingu eins og raunin er hjá Golfklúbbi Suðurnesja. 
 
Eftir setningu í morgun var haldið í Leiruna til æfinga en sjálf keppnin verður á morgun. Um er að ræða punktamót þar sem keppendum verður skipt eftir forgjöf. Vinabæjamótinu verður formlega slitið á fimmtudagskvöld og á föstudagsmorgun halda gestirnir úr landi, 26 keppendur og 7 þjálfarar og fylgdarmenn. Frá Reykjanesbæ keppa 10 ungmenni.
 
Vinabæirnir skiptast á að halda mótin árlega. Síðast var mót í Reykjanesbæ fyrir fimm árum síðan en Hjörring í Danmörku hefur í millitíðinni dregið sig út úr vinabæjasamstarfinu. Þjóðirnar fjórar munu því eftirleiðis halda mót á fjögurra ára fresti, segir á vef Reykjanesbæjar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024