HSS
HSS

Íþróttir

Norðurlandamótið hefst í kvöld
Miðvikudagur 16. maí 2007 kl. 13:48

Norðurlandamótið hefst í kvöld

Norðurlandamótið hjá unglingalandsliðum í körfuknattleik hefst í kvöld en mótið fer fram í bænum Solna skammt fyrir utan Stokkhólm í Svíþjóð. Unglingalandslið Íslands héldu út í morgun og mun U 18 ára landslið karla leika sinn fyrsta leik í kvöld.

 

Alls héldu fjögur lið til Svíþjóðar í morgun en það eru U 18 ára og U 16 ára lið karla og

kvenna. Hópurinn skiptist í 48 leikmenn, 4 þjálfara, 2 aðstoðarmenn, 2 sjúkraþjálfara, 5 fararstjóra og 4 dómara. Það er því 65 manna hópur sem að fer til Svíþjóðar í ár frá Íslandi og eiga Suðurnesjamenn dógóðan skerf af leikmönnum í hópnum.

 

Leikmenn af Suðurnesjum í unglingalandsliðunum sem keppa á NM næstu daga:

 

U 16 ára kvenna:

Dagmar Traustadóttir, UMFN

María Ben Jónsdóttir, Keflavík

Sara Mjöll Magnúsdóttir, Keflavík

Þjálfari: Yngvi Gunnlaugsson

 

U 18 ára kvenna:

Lilja Ósk Sigmarsdóttir, UMFG

Berglind Anna Magnúsdóttir, UMFG

Ingibjörg Jakobsdóttir, UMFG

Íris Sverrisdóttir, UMFG

Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík

Þjálfari: Ágúst Björgvinsson

 

U 18 ára karla:

Elías Kristjánsson, UMFN

Rúnar Ingi Erlingsson, UMFN

Þröstur Leó Jóhannsson, Keflavík

Hjörtur Hrafn Einarsson, UMFN

Þjálfari: Einar Árni Jóhannsson

 

Enginn leikmaður af Suðurnesjum komst í U 16 ára hópinn.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn