Norðurlandameistarar í ballroom og latin dönsum
María Tinna Hauksdóttir úr Njarðvík ásamt dansfélaga sínum Gylfa Má Hrafnssyni urðu um helgina Norðurlandameistarar í ballroom dönsum og í latin dönsum í flokki unglinga.
Mótið var haldið í Kungsör í Svíþjóð og sagði Esther Nielsdóttir, móðir Maríu Tinnu, að þau hafi verið landi og þjóð til sóma á mótinu.