HSS
HSS

Íþróttir

Norðmaður í Njarðvíkurnar
Johannes í leik með norska landsliðinu gegn Íslandi árið 2018.
Miðvikudagur 5. ágúst 2020 kl. 10:56

Norðmaður í Njarðvíkurnar

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá samningum við tvo nýja leikmenn fyrir komandi leiktíð.

Johannes Dolven er 24 ára norskur landsliðsmaður er fyrsti Norðmaðurinn sem leikur í efstu deild á Íslandi. Johannes er 206 cm miðherji sem útskrifaðist úr Barry University í vor en þar skilaði hann 9.1 stigi og 7.1 frákasti að meðaltali í leik. Í Barry lék hann með Njarðvíkingnum Elvari Má Friðrikssyni tímabilið 2017-2018. Elvar Már mun leika í Litháen á næstu leiktíð, eins og VF greindi nýlega frá.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ryan Montgomery er 22 ára Bandaríkjamaður. Hann er 198 cm og getur leikið báðar framherjastöðurnar. Hann útskrifaðist úr Lee University í vor en þeir eru í 2.deild NCAA eins og Barry. Ryan var með 18,1 stig, 5,9 fráköst, 1,5 stoðsendingu og 1,3 stolna bolta að meðaltali í leik á lokaári sínu með Lee University.