Nóg af færum en engin mörk
Grétar Hjartarson var ekki á skotskónum þegar hann mætti með sínu nýja liði, KR, á Grindavíkurvöll í kvöld. Þar hefur Grétar skorað fjöldamörg mörk á ferlinum en honum voru mislagðar fætur í kvöld eins og öðrum í 0-0 jafntefli Grindavíkur og KR.
Leikurinn var fjörugur og ekki vantaði færin en sóknarmenn beggja liða, sérstaklega gestanna, geta nagað sig í handarbökin.
Grétar átti tvö góð skot að marki Grindavíkur á upphafsmínútum leiksins, þar af eitt úr aukaspyrnu af 20m færi. Magnús Sverrir Þorsteinsson fékk gott færi hinum megin á vellinum en stuttu síðar tókst Rógva Jacobssen, sóknarmanni KR á ótrúlegan hátt að misnota færi einn á móti auðu marki á endalínunni (sjá mynd 2). Eftir að hafa leikið á Savic í marki UMFG var Rógvi á auðum sjó en í stað þess að senda boltann í markið beið hann eftir að Sinisa Kekic hlypi hann uppi og straujaði boltann útaf. Kekic átti afar góðan leik í hjarta varnarinnar í kvöld og náði vel saman við Mathias Jack.Færin voru líka á hitt markið þar sem Paul McShane, sem var afar ógnandi í leiknum, átti stangarskot.
Í seinni hálfleik var það sama uppi á teningnum þar sem liðin sóttu og komu sér í færi án þess að nýta sér þau. KR-ingar voru sérstaklega aðgangsharðir en Savic stóð sína pligt með sóma. Þá gerði Rógvi sig aftur sekan um að misnota afbragðsfæri þegar hann skaut hátt yfir af stuttu færi.
Grindvíkingar komust hins vegar næst því að skora í seinni hálfleik þegar skot Óskars Arnar Haukssonar hafnaði í Jökli Elísabetarsyni og fór þaðan í nærstöngina og útaf eftir um klukkustundar leik.Á 70. mínútu kom Óli Stefán Flóventsson inn á völlinn fyrir Mounir Ahandour, en hann hóf leikin á bekknum eftir að hafa sæst við Milan Stefán Jankovic þjálfara, en þeir höfðu átt í deilum nokkru áður.
Þegar dómari blés leikinn af voru vonbrigði beggja liða augljós, en KR er í 6. sæti deildarinnar eftir afleitt gengi fyrir framan mörk andstæðinganna og Grindavík er í 9. sæti með aðeins 4 stig.
Sinisa Kekic, fyrirliði Grindvíkinga, sagði úrslitin sennilega hafa verið réttlát. „Þeir fengu færi og við fengum færi en okkur tókst ekki að nýta þau. Við erum ekki sáttir með stöðuna núna því að fjögur stig úr sex leikjum er minna en við ætluðum okkur. Það dugar hins vegar ekki að velta sér upp úr liðnum leikjum heldur verðum við að hugsa um þá sem eru framundan.“
VF-myndir/Þorgils