Bygg
Bygg

Íþróttir

Njósnari til Keflavíkur
Mánudagur 12. júní 2006 kl. 15:48

Njósnari til Keflavíkur

David Mills, yfirnjósnari enska knattspyrnuliðsins, Newcastle United hefur boðað komu sína á leik Keflavíkur og Dungannon í Inter Toto keppninni þann 17. júní n.k.

Keflavík og Dungannon leika tvo leiki, heima og að heiman, og mun sigurvegarinn úr leikjunum mæta Lilleström frá Noregi. Sigurvegarinn úr viðureigninni gegn Lilleström mun síðan mæta Newcastle.

Í samtali við framkvæmdastjóra Keflavíkur sagði Mills að forsvarsmenn Newcastle gerðu ekki síður ráð fyrir því að mæta Keflavík en Lilleström. Ekki má þó gleyma að Dungannon er sýnd veiði en ekki gefin.

VF-mynd/ [email protected] - Keflvíkingar verða að herða róðurinn frá Skagaleiknum ef þeir ætla að láta vel í sér heyra í Inter Toto keppninni.


Bílakjarninn
Bílakjarninn