Njarðvíkurstúlkur Íslandsmeistarar
Njarðvíkurstelpur í 8. flokki kvenna urðu Íslandsmeistarar í körfuknattleik um helgina. Liðið er skipað stúlkum úr 7. flokki en keppa einnig í 8. flokki og sigruðu þar glæsilega Íslandsmeistaratitil um helgina. Þær spila um næstu helgi um Íslandsmeisaratitilinn í 7. flokki og eiga þar með möguleika á að koma tveimur Íslandsmeisaratitlum til Njarðvíkur á rúmlega viku.