Njarðvíkurstúlkur fá liðsstyrk
Njarðvíkurstúlkur munu á næstu dögum fá Shantrell Moss til liðs við sig fyrir komandi baráttu í Iceland Express deild kvenna. Moss er um 180 cm að hæð og spilaði fyrir Clark háskólann í Atlanta. Shantrell Moss ætti að vera sprettharður leikmaður því hún keppti í 100m hlaupi fyrir Georgia Tech háskólann þar sem hún tók 100 metrana á 11:83 sek.
Þá mun fyrrverandi fyrirliði Keflavíkurstúlkna, Ingibjörg Vilbergsdóttir, leika með liðinu í vetur að einhverju leyti.