Íþróttir

Njarðvíkingum sópað út úr Síkinu og Íslandsmótinu
Dedrick Basile var stigahæstur Njarðvíkinga í kvöld með sextán stig. Lisandro Rasio tók út leikbann og lék ekki með en hann hafði verið sterkur og sýnt mikla baráttu í fyrri viðureignunum við Tindastól. Mynd úr þriðja leik liðanna/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 29. apríl 2023 kl. 23:17

Njarðvíkingum sópað út úr Síkinu og Íslandsmótinu

Tindastóll sýndi enga miskunn þegar Njarðvík mætti á Krókinn í fjórða leik liðanna í kvöld. Njarðvíkingar máttu sín lítils gegn sterkum Stólunum sem unnu yfir fjörutíu stiga sigur og sendu gestina í sumarfrí. Lokatölur 117:76 í kvöld og 3:1 í einvíginu.

Að öllum líkindum var þetta síðasti leikur fyrirliðans Loga Gunnarssonar sem hefur leikið um 400 leiki með Njarðvík. Ótrúlega leiðinlegt að jafn glæstum ferli skuli ljúka með svona útreið. 

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Njarðvíkingar sáu aldrei til sólar á Sauðárkróki í þessum fjórða leik. Tindastóll tók forystu í upphafi og jók forskotið jafnt og þétt eftir því sem leið á leikinn. Stólarnir höfðu náð tuttugu stiga forystu eftir fyrsta leikhluta og leiddu með 34 stigum í hálfleik (68:34).

Njarðvíkingar fjölmenntu norður til að styðja sitt lið en voru sendir niðurlútir heim og þátttöku þeirra í Íslandsmótinu er lokið í ár.


Tindastóll - Njarðvík 117:76

(34:14, 34:20, 20:16, 29:26)

Njarðvík: Dedrick Deon Basile 16/4 fráköst/7 stoðsendingar, Haukur Helgi Pálsson 13/10 fráköst, Maciek Stanislav Baginski 12, Nicolas Richotti 12, Mario Matasovic 11/9 fráköst, Logi Gunnarsson 4, Jose Ignacio Martin Monzon 4/4 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 3, Elías Bjarki Pálsson 1, Jan Baginski 0, Rafn Edgar Sigmarsson 0.

Bílakjarninn
Bílakjarninn