Njarðvíkingar töpuðu stigum í toppbaráttunni
Njarðvíkingum mistókst að komast upp að hlið Reynis og Gróttu á toppi 2. deildar þar sem þeir gerðu markalaust jafntefli við Tindastól á Njarðtaksvellinum í gærkvöldi.
Þrátt fyrir að Tindastólsmenn léku manni færri nær allan seinni hálfleik náðu Njarðvíkingar ekki að setja mark og eru því enn tveimur stigum á eftir toppliðunum sem eigast við í stórleik í Sandgerði í kvöld.
Mynd úr safni umfn.is