HSS
HSS

Íþróttir

Mánudagur 28. október 2002 kl. 21:04

Njarðvíkingar töpuðu gegn nýliðum Vals

Njarðvík tapaði gegn nýliðum Vals, 66-70, í Intersport-deildinni í körfuknattleik í kvöld. Þetta er annað óvænta tap liðsins í deildinni en áður höfðu þeir tapað gegn Haukum í 2. umferð. Keflvíkingar áttu hins vegar ekki í vandræðum með Skallagrím á heimavelli og burstuðu þá 119-84. Gunnar Einarsson var atkvæðamestur í annars mjög jöfnu Keflavíkurliði með 19 stig.Eftir fjórar umferðir eru Keflvíkingar í 2.-4. sæti með 6 stig en Njarðvíkingar koma þar á eftir með 4 stig ásamt nokkrum öðrum liðum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn