Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Njarðvíkingar styrkja sig fyrir sumarið
Föstudagur 11. mars 2005 kl. 11:22

Njarðvíkingar styrkja sig fyrir sumarið

Þrír nýjir leikmenn gengu til liðs við Njarðvík í gær. Árni Þór Ármannsson 19 ára kemur frá Keflavík, Árni hefur æft og leikið með Njarðvíkingum að undanförnu og gekk uppúr 2. flokki sl. haust. Svo eru það Sandgerðingarnir Benóný Benónýsson og Marteinn Guðjónsson. Benóný er 26 ár og hefur verið fasta leikmaður hjá Reyni undanfarin ár. Marteinn er ekki alls ókunnugur í herbúðum Njarðvíkur því hann lék með þeim árið 2003 og á að baki 26 leiki og 4 mörk með Njarðvík, hann er 27 ára. Þá hefur verið gengið frá því að Jón Fannar Guðmundsson sem leikið hefur með Njarðvík sl. tvö tímabil og verið lánsmaður frá Grindavík verði áfram hjá Njarðvíkingum. En þetta kemur fram á heimasíðu Njarðvíkur(www.umfn.is).


Mynd(af vef Njarðvíkur):/ Marteinn, Árni, Benóný og Jón Fannar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024