Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Njarðvíkingar sóttu bikar til Eyja
Mánudagur 27. júní 2016 kl. 13:51

Njarðvíkingar sóttu bikar til Eyja

Flottir strákar í 6. flokki í fótboltanum

Njarðvíkingar voru sigursælir á Orkumóti 6. flokks í fótbolta um helgina. Njarðvík sendi tvö lið til leiks en Njarðvíkurlið 1 tókst að vinna einn af þeim bikurum sem voru í boði á mótinu, svokallaðan Álfseyjarbikar. Sigurinn kom eftir mikla baráttu við FH í úrslitaleik og var það Tómas Ingi Oddsson fyrirliði liðsins sem tók við bikarnum í leikslok.

Að venju fór fram á föstudeginum úrvalsleikur milli landsliðsins og pressuliðs og átti Njarðvík fulltrúa í báðum liðum. Alexander Freyr Sigvaldason spilaði með pressuliðinu og Jón Garðar Arnarsson var markvörður landsliðsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Alexander Freyr Sigvaldason og Jón Garðar Arnarsson.

Tómas Ingi Oddsson fyrirliði Njarðvíkinga með bikarinn.