HSS
HSS

Íþróttir

Njarðvíkingar semja við ungu leikmennina
Mánudagur 25. apríl 2016 kl. 09:29

Njarðvíkingar semja við ungu leikmennina

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur framlengdi samningum við nokkra efnilega leikmenn karlaliðsins um helgina. Það voru þeir Adam Eiður Ásgeirsson, Gunnlaugur Sveinn Hafsteinsson, Jón Arnór Sverrisson, Snjólfur Marel Stefánsson, Hilmar Hafsteinsson, Hermann Ingi Harðarsson og Gabríel Möller sem framlengdu samninga sína. Flestir hafa þeir fengið nasaþefinn af því að leika í úrvalsdeild nú þegar.

Nýráðinn þjálfari liðsins, Daníel Guðni Guðmundsson sagði við undirskriftina að allir leikmenn félagsins ættu jafna möguleika á spilatíma, það væri einfaldlega undir þeim sjálfum komið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn