Njarðvíkingar semja við spænskan miðjumann
Liðinu spáð 6. sæti í 2. deildinni í sumar
Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur samið við spænska leikmanninn Marc L. Ferrer.
Ferrer þessi er 31 árs miðjumaður sem lék með Leikni frá Fáskrúðsfirði seinni hluta síðasta sumars.
Njarðvíkingar sækja Hött frá Egilsstöðum heim n.k. laugardag í fyrsta leik sínum í 2. deildinni þetta sumarið en Njarðvíkingum var á dögunum spáð 6. sæti af heimasíðunni fótbolti.net