Bygg
Bygg

Íþróttir

Þriðjudagur 12. ágúst 2003 kl. 15:04

Njarðvíkingar semja við Bandaríkjamann

Líklegt að Teitur leiki einnig með
Njarðvíkingar hafa samið við bandaríska leikmanninn Brandon Woudstra og mun hann leika með félaginu í úrvalsdeildinni í vetur. Brandon sem er 191cm á hæð og 87 kg. hefur spilað með Northwestern College liðinu í 2. deild NAIA. Þar var hann mikill leiðtogi og leiddi lið sitt til sigurs í deildinni bæði 2001 og 2003, skoraði að meðaltali 26 stig í leik, hirti 7,5 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Á heimasíðu Njarðvíkinga er sagt að Brandon hafi leitt lið sitt í stigaskori, fráköstum, stoðsendingum, stolnum boltum, vítanýtingu og 3ja stiga nýtingu. Þar segir m.a. að hann hafi verið valinn leikmaður ársins í sinni deild og valinn í NAIA „All American“ 2001, 2002 og 2003. Friðrik Ragnarsson þjálfari Njarðvíkinga sagði í samtali við Víkurfréttir að hann ætlaði sér að reyna að ná Brandon á fyrstu æfinguna í byrjun september. „Mér lýst mjög vel á þennan leikmann. Hann er góður skotmaður og var til að mynda með 55% 2ja stiga nýtingu, 49% 3ja stiga nýtingu og 85% vítanýtingu. Hann spilaði reyndar ekki í sterkri deild í Bandaríkjunum en skilaði mjög góðum tölum þar þannig að ég er jákvæður“. Friðrik sagði deildina sem Brandon spilaði í svipaða þeirri íslensku að styrkleika og ef hann skilaði svipuðum tölum hér yrði hann sáttur.Aðspurður hvort Njarðvíkingar yrðu með fleiri en einn kana sagðist Friðrik ekki geta lokað á það að liðið fengi sér annan kana í janúar. Þeir yrðu þó undir launaþakinu sem KKÍ hefur sett á öll liðin í deildinni og hefur vakið upp margar spurningar og skiptar skoðanir manna í körfuboltaheiminum hér á landi. „Planið er að vera með einna kana og láta það ganga. Það getur þó verið að annar kani verði fenginn í janúar en planið er láta þetta smella með einum“.
Njarðvíkingar byrja tímabilið með nánast sama lið og í fyrra en Ragnar Ragnarsson mun hins vegar vera búinn að semja við nágrannlið Grindavíkur og leikur því með þeim í vetur. Þá segir Friðrik að hann telji líklegt að Teitur leiki með í vetur ásamt því að hann er bjartsýnn á að hinn ungi Egill Jónasson muni fá veigamikið hlutverk í liðinu í vetur. Egill sem er um 215 cm á hæð hefur tekið gríðarlegum framförum í sumar og sagði Friðrik að það væri í raun glæpur að nota hann ekki.
Bílakjarninn
Bílakjarninn