Njarðvíkingar of sterkir fyrir Keflavík
Njarðvíkingar fara með 4ra stiga forskot inn í nýja árið í Iceland Express deild karla eftir stórsigur á nágrönnum sínum í Keflavík 108 – 84. Jafnræði var með liðunum framan af leik en Njarðvíkingar komu ákveðnir til seinni hálfleiks og léku á alls oddi allt þar til lokaflautan gall. Brenton Birmingham gerði fyrstu stig leiksins og kom Njarðvíkingum í 2-0. Jón Hafsteinsson fékk sína aðra villu þegar tæpar 4 mínútur voru liðnar af 1. leikhluta og hélt á bekkinn. Keflvíkingar virtust bara styrkjast við mótlætið og sigruðu fyrsta leikhluta 15 – 24 með fínum lokaspretti.
Fyrirliðinn Halldór Karlsson og Jóhann Árni Ólafsson voru duglegir í 2. leikhluta þegar Njarðvíkingar hófu að saxa á forskot Keflavíkur. Svo fór að Njarðvíkingar höfðu yfir í leikhléi 54 – 45 í hröðum og skemmtilegum leik.
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga, sendi sína menn reiðubúna í seinni hálfleikinn og á skömmum tíma breyttu Njarðvíkingar stöðunni úr 54 – 45 í 72 – 56. Guðmundur Jónsson gerði 3 þriggja stiga körfur fyrir Njarðvíkinga á skömmum tíma og það dugði til að kveikja í heimamönnum sem létu kné fylgja kviði og kláruðu nágranna sína með 24 stiga mun. Síðasti leikfjórðungurinn var eingöngu formsatrið fyrir Njarðvíkinga að klára og sást það bersýnilega á Keflvíkingum í gærkvöldi að þá bráðvantar leikmann til að skila miðherjastöðunni.
Jeb Ivey var stigahæstur Njarðvíkinga með 26 stig og 9 stoðsendingar og A.J. Moye var atkvæðamestur í Keflavíkurliðinu með 25 stig og 15 fráköst. Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflavíkur, lék 18 mínútur í leiknum og gerði aðeins 2 stig en Keflvíkingar þurfa meira frá þeim kraftmikla leikmanni ætli þeir sér að vera áfram í toppbaráttunni.
Í leiknum í gær var Guðjón Skúlason í leikmannahópi Keflavíkur og kom hann inn á undir lok leiks. Við innákomu Guðjóns klöppuðu áhangendur Njarðvíkinga vel fyrir honum og það var ánægjulegt að sjá Guðjón í búning á nýjan leik enda meðal bestu körfuknattleiksmanna Íslands fyrr og síðar.
Njarðvíkingar eru eins og fyrr getur á toppi deildarinnar með 20 stig en þar á eftir koma Grindavík og KR með 16 stig og Keflavík 14 en þeir eiga tvo leiki til góða á liðin fyrir ofan sig.
VF-myndir/ JBÓ