Njarðvíkingar leika á heimavelli í kvöld
Njarðvík tekur á móti toppliði Víkings í 1. deild karla í knattspyrnu á Njarðvíkurvelli í kvöld og hefst leikurinn kl. 20:00. Njarðvíkingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Þór á útivelli 4-2 í síðustu umferð og eru því til alls líklegir í kvöld. Njarðvíkingar eru sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 6 stig að loknum fjórum umferðum.