HSS
HSS

Íþróttir

Fimmtudagur 11. apríl 2002 kl. 22:37

Njarðvíkingar komnir með yfirhöndina

Njarðvíkingar sigruðu Keflvíkinga í kvöld 68:89 í úrslitum Epson-deildarinnar í körfu en staðan í hálfleik var 35:44. Staðan í einvíginu er því 1-0 fyrir Njarðvík en næsti leikur er á laugardaginn í ljónagryfjunni.Það var ljóst frá byrjun í hvað stefndi því Njarðvíkingar komu miklu ákveðnari til leiks og náðu strax ágætis forskoti. Leikmenn Keflavíkur virtust taugaspenntir og skotin voru ekki að rata rétta leið. Páll Kristinsson byrjaði gríðarlega vel fyrir Njarðvíkinga og fór mikið á vítalínuna. Guðjón Skúlason náði að halda heimamönnum inní leiknum með tveimur þriggjastiga körfum en annars voru Njarðvíkingar alltaf skrefinu á undan. Staðan eftir 1. leikhluta var 18:24.
Í 2. leikhluta héldu Njarðvíkingar áfram að auka forskotið með þá Pete Philo og Brenton Birmingham í broddi fylkinga en þeir voru að fá galopin þriggjastiga skot sem þeir settu ofan í körfuna til skiptis og mega Keflvíkingar teljast heppnir að hafa ekki verið nema 9 stigum undir í hálfleik, 35:44.
Síðari hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri því gestirnir byrjuðu af krafti en Keflvíkingar voru alltaf á hælunum og voru að fá mikið af villum. Keflvíkingar voru að spila ágætis vörn en þeir hittu einfaldlega EKKERT, klikkuðu t.d. úr 5 vítum í röð og það er ekki vísir á gott þar á bæ. Staðan eftir 3. leikhluta var 47:58 og í raun ótrúlegt að gestirnir hafi ekki verið með meira forskot enda voru heimamenn lítið sem ekkert að gera í þessum leik.
Í 4. leikhluta byrjaði Brenton á því að setja tvo þrista og það má segja að það hafi gert út um leikinn því Keflvíkinga misstu allan mátt. Njarðvíkingar höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda og í lokin fengu minni spámenn í liði þeirra að spreyta sig. Staðan að leik loknum var 68:89.

Hjá Njarðvík var Brenton Birmingham bestur með 21 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Pete Philo var einnig mjög öflugur með 17 stig en tapaði reyndar boltanum 7 sinnum.
Aðrir sem settu mark sitt á leik Njarðvíkinga voru: Logi Gunnarsson með 18 stig, Páll Kristinsson með 11 stig, 11 fráköst og 3 stolna bolta, Friðrik Stefánsson með 10 stig, 10 fráköst og 3 varin skot, Teitur Örlygsson með 6 stig og Halldór Karlsson með 4 stig.
Hjá Keflvíkingum voru allir að spila undir getu en Damon Johnson var þó skástur en hann skoraði 23 stig og hirti 10 fráköst. Davíð Þór Jónsson átti einnig ágæta spretti í þann tíma sem hann spilaði og skoraði 10 stig og var að spila góða vörn.
Aðrir sem settu mark sitt á leikinn hjá Keflavík voru: Sverrir Sverrisson með 6 stig, Jón N. Hafsteins með 2 stig, Magnús Þór Gunnarsson með 3 stig, Guðjón Skúlason með 11 stig, Gunnar Einarsson með 11 stig og Gunnar Stefánsson með 2 stig.

Maður leiksins: Brenton Birmingham
Setning leiksins: „Njarðvíkingar voru einfaldlega miklu ákveðnari“

Viðtöl við leikmenn birtast á vf.is á morgun!!
Bílakjarninn
Bílakjarninn