HSS
HSS

Íþróttir

Njarðvíkingar komnir í fallsætið á ný
Frá leik liðanna í gær - mynd fengin af facebook síðu knattspyrnudeildar UMFN
Sunnudagur 23. ágúst 2015 kl. 09:00

Njarðvíkingar komnir í fallsætið á ný

Erfið brekka framundan í botnbaráttunni

Njarðvíkingar urðu að sætta sig við 0-2 tap gegn liði KF er liðin mættust á Njarðtaksvellinum í gær. Tapið þýðir að Njarðvíkingar sitja í fallsæti eftir 17 umferðir.

KF komst yfir á 24. mínútu með marki Alexanders Más Þorlákssonar. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar voru sterkari aðilinn og sóttu heilmikið án þess að það bæri ávöxt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

KF gerði svo úti um leikinn á 62. mínútu þegar téður Alexander Már Þorláksson skoraði annað mark sitt í leiknum. Eins og í fyrri hálfleik voru það heimamenn í Njarðvík sem að stjórnuðu gangi leiksins en tókst ekki, þrátt fyrir fjölda góðra færa, að koma boltanum í netið.

 Tryggvi Guðmundsson í baráttunni - mynd fengin af facebook síðu knattspyrnudeildar UMFN

Njarðvíkingar eiga fimm leiki eftir í deildinni og eru þar 15 stig í boði sem að liðið þarf að berjast fyrir til að halda sæti sínu í deildinni. 

Næstu leikir liðsins eru gegn Huginn og ÍR sem sitja í tveimur efstu sætum deildarinnar.