Bygg
Bygg

Íþróttir

Sunnudagur 2. mars 2003 kl. 20:42

Njarðvíkingar komnir á beinu brautina

Fimm leikir fóru fram í Intersport-deildinni í körfuknattleik í kvöld og voru tvö Suðurnesjalið í eldlínunni. Njarðvíkingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu KR-inga á heimavelli þeirra síðarnefdu, 80-89, og hafa þeir grænklæddu nú unnið tvö topplið í röð með nýjan erlendan leikmann innanborðs. Þá sigruðu Keflvíkingar á útivelli gegn Breiðablik, 78-93, en gestirnir úr bítlabænum höfðu yfirhöndina allan leikinn.Eftir leiki kvöldsins eru Keflvíkingar einir í 2. sæti deildarinnar með 32 stig en KR er í 3. sæti með 30 stig. Njarðvíkingar eru sem fyrr í 5. sæti deildarinnar með 24 stig. Grindavík er á toppi deildarinnar með 32 stig en þeir eiga leik til góða gegn Haukum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn