Bygg
Bygg

Íþróttir

Njarðvíkingar í góðri stöðu
Haukur Helgi Pálsson var atkvæðamikill á lokamínútunum fyrir Njarðvík. Myndir úr fyrri leik liðanna/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 8. apríl 2023 kl. 07:51

Njarðvíkingar í góðri stöðu

Njarðvíkingar eru komnir með tvo sigra í einvígi sínu við Grindavík í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfuknattleik eftir góðan sigur í Grindavík í gær. Þeir eru því í vænlegri stöðu því þrír sigrar tryggja sæti í undanúrslitum.

Njarðvíkingar byrjuðu betur og höfðu sex stiga forystu að loknum fyrsta leikhluta (19:25), heimamönnum tókst að minnka muninn í fimm stig í öðrum leikhluta (43:48) og héldu áfram að saxa á forskotið í þeim þriðja.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þegar fjórði leikhluti hófst átti Njarðvík þrjú stig (66:69) en áfram héldu Grindvíkingar að setja pressu á gestina og náðu að jafna og komast yfir (73:72). Það stefndi því í mikla spennu á lokamínútunum eins og í fyrri leiknum en í stöðunni 79:79 sigldu gestirnir úr Njarðvík fram úr heimamönnum með góðu framlagi Hauks Helga Pálssonar sem setti niður ellefu stig á lokamínútunum, þar af tvo þrista. Lokatölur 86:94 og Grindvíkingar eiga á brattann að sækja ætli þeir sér lengra í úrslitakeppninni.

Sem fyrr lét Ólafur Ólafsson mikið að sér kveða í liði heimamanna, var með átján stig, sjö fráköst, fimm stolna bolta og 24 framlagspunkta. Þá var Damier Erik Pitt með 24 stig.


Hjá Njarðvík áttu þeir Dedrick Basile og Haukur Helgi góðan dag og Haukur Helgi sá til þess að sigurinn félli þeirra megin með stórum körfum í lokin.

Grindavík - Njarðvík 86:94

(19:25, 24:23, 23:21, 20:25)

Grindavík: Damier Erik Pitts 24, Ólafur Ólafsson 18/7 fráköst/5 stolnir, Zoran Vrkic 17/5 fráköst, Nökkvi Már Nökkvason 8, Kristófer Breki Gylfason 8, Gkay Gaios Skordilis 8/10 fráköst/5 stoðsendingar, Bragi Guðmundsson 3, Hilmir Kristjánsson 0, Magnús Engill Valgeirsson 0, Valdas Vasylius 0, Hafliði Ottó Róbertsson 0, Hinrik Guðbjartsson 0.
Njarðvík: Dedrick Deon Basile 30/6 fráköst/6 stoðsendingar, Haukur Helgi Pálsson 21/4 fráköst, Lisandro Rasio 16/7 fráköst, Nicolas Richotti 12/5 fráköst/6 stoðsendingar, Mario Matasovic 11/7 fráköst, Oddur Rúnar Kristjánsson 2, Maciek Stanislav Baginski 2, Elías Bjarki Pálsson 0, Jan Baginski 0, Logi Gunnarsson 0, Rafn Edgar Sigmarsson 0, Ólafur Helgi Jónsson 0.