Njarðvíkingar grimmari í Ljónagryfjunni
Úrslitaviðureign UMFG og UMFN verður í Grindavík á skírdag.
Njarðvíkingum tókst með harðfylgi að halda lífi í von þeirra um að komast í úrslitaleikinn gegn KR í Domino's deildinni í körfubolta eftir sigur á Grindavík í Ljónagryfjunni í kvöld. Lokatölur urðu 77-68 fyrir heimamenn eftir að staðan í hálfleik hafði verið 26-30.
„Ég vildi alls ekki klára minn síðasta leik með Njarðvík áður en ég fer utan með tapi á heimavelli. Það var frábært að vinna og nú fylgjum við því eftir með sigri á fimmtudaginn,“ sagði Elvar Már Friðriksson eftir leikinn í viðtali við Stöð 2. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari UMFG sagði að sínir menn hefðu verið arfaslakir og ekki átt skilið að vinna. Hefðu í raun hangið lengur inni í leiknum en frammistaða þeirra bauð upp á.
Njarðvíkingar voru betri í fyrsta leikhluta en skoruðu svo aðeins 7 stig í næsta og voru undir í leikhlé, 26-30. Þeir unnu svo næstu fjórðunga en munurinn var aldrei mikill. Grindvíkingar voru inni í leiknum alveg þangað til í blálokin. Elvar Már var gríðarlega öflugur á lokakaflanum og mjög góður í leiknum öllum. Það er unun að sjá drenginn spila körfubolta og það mun ekki koma neinum á óvart þó svo honum vegni vel í New York en þangað heldur hann í háskólanám og körfuboltaleik í haust.
Elvar skoraði 21 stig, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar og Tracy Smith girti heldur betur upp buxurnar frá síðasta leik og var með 25 stig og 3 varin skot. Logi Gunnarsson var ekki upp á sitt besta en er samt alltaf gríðarlega öflugur inni á vellinum. Hann kláraði 13 stig.
Hjá Grindavík var Sigurður G. Þorsteinsson með 15 stig og 10 fráköst og 4 varin skot, Earnest Lewis skoraði aðeins 13 stig og var ekki nærri því eins drjúgur og í fyrri leikjum og munar um minna. Ólafur Ólafs var með 12 stig, Ómar Örn 11 og Jóhann Árni 10 stig.
Lokaleikurinn í þessari undanúrslitaviðureign verður í Grindavík á skírdag kl. 19.15.
Sigurður Gunnar og Tracy Smith í baráttunni.
Logi Gunnarsson skoraði 13 stig og var drjúgur í lokin.
Hjörtur Einarsson leitar að gati í vörn Grindvíkinga.
Troðfullt var í Ljónagryfjunni í kvöld.