Njarðvíkingar gera góða hluti á Scania Cup
9. flokkur karla frá Njarðvík hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína á Scania Cup mótinu í körfubolta sem fer fram í Svíþjóð þessa dagana.
Þeir hafa því tryggt sér efsta sæti riðilsins og keppa í fyrramálið í 8-liða úrslitum gegn finnsku liði.
Þess má geta að þessir sömu strákar unnu mótið í sínum aldursflokki í fyrra.