Njarðvíkingar fengu Selfoss
Í dag var dregið í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu en Njarðvíkingar voru eina Suðurnesjaliðið sem var í pottinum í dag. Njarðvíkingar drógust á móti Selfyssingum sem leika einnig í 2. deild svo möguleikarnir eru enn nokkuð góðir á því að komast áfram.
Grindavík og Keflavík koma ekki inn í keppnina fyrr en lengra er á hana liðið. Leikur Njarðvíkinga fer fram þann 31. maí á Njarðvíkurvelli kl. 20. Sandgerðingar eru þegar dottnir úr keppninni.
Grindavík og Keflavík koma ekki inn í keppnina fyrr en lengra er á hana liðið. Leikur Njarðvíkinga fer fram þann 31. maí á Njarðvíkurvelli kl. 20. Sandgerðingar eru þegar dottnir úr keppninni.