Safnahelgi
Safnahelgi

Íþróttir

Njarðvík vann grannaslaginn í háspennuleik – Dinkins fór á kostum með 36 stig
Brittany Dinkins fór mikinn í háspennusigri á Keflavík. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 7. október 2026 kl. 21:32

Njarðvík vann grannaslaginn í háspennuleik – Dinkins fór á kostum með 36 stig

Íslandsmeistarar Njarðvíkur höfðu betur gegn bikarmeisturum Keflavíkur, 83-79, í háspennu Suðurnesjaslag í Bónus-deild kvenna í IceMar-höllinni í Njarðvík í kvöld. Brittany Dinkins var frábær í liði heimakvenna og skoraði 36 stig.

Jafnræði var með liðunum frá fyrstu mínútu og staðan 25-25 eftir fyrsta leikhluta. Njarðvíkurkonur náðu örlitlu frumkvæði í öðrum leikhluta, unnu hann 22-20 og leiddu 47-45 þegar gengið var til búningsherbergja.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Keflavík kom sterkt út eftir hlé og sneri leiknum sér í hag. Gestirnir unnu þriðja leikhlutann 21-17 og höfðu tveggja stiga forskot, 66-64, þegar komið var að síðustu tíu mínútunum.

Keflvíkingar héldu forystu þar til þrjár og hálf mínúta var eftir. Þá komust heimakonur yfir og síðan var restin í járnum. Njarðvíkingar voru með nauma forystu í blálokin og litlu munaði að Thelma Dís Ágústsdóttir jafnaði leikinn þegar 17 sekúndir voru eftir en boltinn fór ofan í hringinn en skoppaði upp úr. Dinkins kláraði dæmið á vítalínunni á síðustu sekúndunum.  Lokatölur 83-79, í jöfnum og spennandi grannaslag.

Brittany Dinkins var gríðarlega öflug á lokakaflanum og steig upp þegar þurfti en hún var líka frábær allan leikinn.

Dinkins var langstigahæst Njarðvíkur með 36 stig og lét einnig mikið að sér kveða í varnarleiknum með sex stolna bolta. Helena Rafnsdóttir átti frábæran leik og skoraði 18 stig.

Hulda María Agnarsdóttir var í stóru hlutverki, og var mjög öflug. Hún skoraði 11 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Ásta Júlía Grímsdóttir réð ríkjum í fráköstunum með 15 slík auk fimm stiga og Emma Grace Theódórsson skoraði sjö stig og tók sjö fráköst. Njarðvíkingar sakna Dani Rodriguez sem verður frá til áramóta vegna meiðsla.

Hannah Little fór fyrir Keflavík með tvöfalda tvennu, 27 stig og 12 fráköst, auk þess að verja þrjú skot. Hún sýndi frábæra takta og er spennandi leikmaður. Amaiquen Siciliano, hinn útlendingurinn, skoraði 23 stig og tók fimm fráköst. Anna Lára Vignisdóttir og Anna Ingunn Svansdóttir skoruðu átta stig hvor og Thelma Dís sjö. Þriggja stiga nýtingin var ekki góð hjá Keflavík en liðið sýndi frábæra baráttu en nýr þjálfari, Arnór Daði Jónsson var ekki ánægður með varnarleikinn en hann getur verið ánægður með mjög margt.

Tölur:

Njarðvík-Keflavík 83-79 (25-25, 22-20, 17-21, 19-13)

Njarðvík nýtti 31 af 63 skotum utan af velli, eða 49,2%, á meðan Keflavík hitti úr 30 af 77, eða 39,0%. Munurinn var sérstaklega áberandi í tveggja stiga skotum: Njarðvík hitti úr 26 af 42, eða 61,9%, en Keflavík úr 23 af 45, eða 51,1%.

Hvorugt lið fann taktinn fyrir utan þriggja stiga línuna. Njarðvík hitti úr fimm af 21 tilraun, eða 23,8%, og Keflavík úr sjö af 32, eða 21,9%. Heimakonur bættu hins vegar upp færri þriggja stiga körfur með fleiri stigum af vítalínunni: 16 gegn 12. Vítanýting Njarðvíkur var 66,7% en Keflavíkur 75,0%.

Keflavík tók einu frákasti meira, 43 gegn 42, þar af 17 sóknarfráköst gegn níu. Gestirnir skoruðu einnig mun fleiri stig eftir tapaða bolta, 22 gegn sex. Njarðvík hafði aftur á móti betur í stigum eftir sóknarfráköst, 14–10. Betri skotnýting og öflugur lokafjórðungur vógu þungt í fjögurra stiga sigri heimaliðsins.

Njarðvík: Brittany Dinkins 36/6 stolnir, Helena Rafnsdóttir 18, Hulda María Agnarsdóttir 11/8 fráköst/7 stoðsendingar, Emma Grace Theódórsson 7/7 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 5/15 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 3, Alexandra Eva Sverrisdóttir 2, Sara Björk Logadóttir 1, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.

Keflavík: Hannah Little 27/12 fráköst/3 varin skot, Amaiquen Siciliano 23/5 fráköst, Anna Lára Vignisdóttir 8, Anna Ingunn Svansdóttir 8, Thelma Dís Ágústsdóttir 7/4 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4/4 fráköst, Hanna Gróa Halldórsdóttir 2, María Jónsdóttir 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0, Ásdís Lilja Guðjónsdóttir 0, Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir 0, Oddný Hulda Einarsdóttir 0.

Bílakjarninn
Bílakjarninn