HSS
HSS

Íþróttir

Njarðvík tapaði gegn toppliði Hauka
Miðvikudagur 7. mars 2018 kl. 21:40

Njarðvík tapaði gegn toppliði Hauka

Njarðvík tók á móti toppliði Hauka í Domino´s-deild kvenna í körfu í kvöld. Njarðvík hefur ekki enn tryggt sér sigur í deildarleik í vetur á meðan að Haukar tróna á toppi deildarinnar. Leikur kvöldsins var eftir bókinni en Njarðvíkingar börðust hetjulega en það dugði þeim ekki til sigurs í kvöld og lokatölur leiksins voru 75-85 fyrir Haukum.

Stigahæstu leikmenn Njarðvíkur voru Shalonda R. Winton 31 stig, 22 fráköst, 6 stoðsendingar og 3 varin skot, Hrund Skúladóttir 18 stig og 5 stolnir boltar, María Jónsdóttir 11 stig og 6 fráköst, Hulda Bergsteinsdóttir 10 stig og 6 fráköst og Björk Gunnarsdóttir 5 stig og 7 stoðsendingar.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn