Njarðvík tapaði gegn Haukum
Njarðvík tók á móti Haukum í Inkasso-deildinni í knattspyrnu í gær og endaði leikurinn með sigri gestanna úr Hafnarfirði 2-1.
Helgi Þór Jónsson kom Njarðvík yfir á 37. mínútu og í hálfleik var staðan 1-0 fyrir heimamenn. Magnús Þór Magnússon, leikmaður Njarðvíkur skoraði sjálfsmark á 72. mínútu og Arnar Aðalgerisson kom Haukum í 1-2 á 88. mínútu.
Lokamínútur í Inkasso-deildinni í sumar hafa reynst Njarðvíkingum erfiðar en úrslitin hafa oftar en ekki ráðist á síðustu mínútum leiksins, þá annað hvort með tapi eða jafntefli.
Njarðvík situr í 7. sæti Inkasso- deildarinnar eftir leik gærdagsins.