Njarðvík sigurvegari á Nettómótinu
Njarðvíkurmótaröðinni í Reykjaneshöll lauk um helgina þegar Nettómótið í 5. flokki fór fram. Það var vel við hæfi að Njarðvíkingar sigruðu í lokaumferðinni, Eldeyjardeildinni. Liðið lék hreinan úrslitaleik við Skagamenn eftir riðla og úrslitakeppni. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og eftir bráðabana í vítaspyrnukeppni stóðu Njarðvíkurstrákar uppi sem sigurvegar. Njarðvík stóð fyrir fimm yngri flokka mótum í janúar og febrúar en þrjú þeirra höfðu um 500 iðkendur en samtals voru það um 1.700 iðkendur sem sóttu Njarðvíkurmótin 2012.
Myndir/UMFN.is