Njarðvík sigrar Selfoss 3-1
Njarðvík sigraði Selfoss 3-1 í æfingaleik liðanna í Reykjaneshöllinni í gær. Njarðvíkingar hafa ekki verið að fá góð úrslit í æfingaleikjum en sigruðu nokkuð sannfærandi í gær. Gunnar Örn Einarsson skoraði fyrstu tvö mörk Njarðvíkur snemma leiks. Kristinn Örn Agnarsson kom Njarðvíkingum svo í 3-0. Selfyssingar náðu þó að jafna undir lok leiks en Njarðvíkingar réðu ferðinni í leiknum og voru óheppnir að skora ekki fleiri mörk.