Njarðvík semur við Króatískan miðjumann
Króatíski miðjumaðurinn Luka Jagacic hefur samið við Njarðvík og mun leika með liðinu í Inkasso-deildinni í knattspyrnu í sumar. Luka hefur leikið áður í Inkasso deildinni en hann spilaði með Selfossi frá 2013-2018 og þar lék hann 56 deildar- og bikarleiki, ásamt því að skora sjö mörk.
Luka sem er 28 ára kemur til Njarðvíkur frá NK Varazdin í Króatíu, hann hefur leikið með HMK Gorica í króatísku fyrstu deildinni og NK Varazdin í úrvalsdeildinni í Króatíu. Luka á 15 leiki og hefur skorað eitt mark með yngri landsliðum Króata, hann kemur til liðs við Njarðvík upp úr næstu mánaðarmótum.